loksins blogg.. sorry pípsKatla Guðjónsdóttir
Jæja já. Ég er á lífi ef þið hafið verið að velta því fyrir ykkur. Ég held það hafi aldrei liðið svona langt á milli blogga. En svona er þetta...
HAWAII var yndisleg ferð í alla staði. Ég og Betan ákváðum að taka þetta bara alla leið svona síðasta springbreakið og panta okkur ferð til Hawaii. Lögðum af stað á laugardegi í lok febrúar og fengum svo ódýran pakka á netinu að flugið okkar út eftir var frá Atlanta til Chicago, þaðan til LA og þaðan til Hawaii. Sem þýðir að við vorum í 5 fylkjum sama daginn. South Carolina, Georgia, Illinois, California og Hawaii. Geri aðrir betur heldur en heimsflakkararnir KalliogBelli... íha. En þegar við komum loksins til Hawaii eftir allt ferðalagið sem leið bara furðuhratt þá vorum við alveg búnar á því og steinrotuðumst uppá hótelherbergi. Ætla ekki að fara í hvern dag fyrir sig en ferðin einkenndist af "túrisma".... fórum í skoðunarferð um alla eyjuna sem við vorum á, Oahu, í svona tourbus. Svo fórum við á jet-ski, eða sjókött eins og það heitir víst á íslensku. Sama dag fórum við einnig að kafa eða snorkling og þar sáum við fullt af fallegum fiskum í og dóti á fallegustu strönd sem ég hef komið á. Hún er vernduð og ekkert smá daginn. Held að það hafi verið á þessari strönd sem mynd með Elvis Presley var tekin upp, er í Hanauma Bay. Æði gæði. Það sem mér fannst svo einna mest spennandi var hvalaskoðun sem við fórum í, út á bát að skoða hvali og þeir voru heldur betur sprell lifandi þann daginn. Sýndu listir sínar fyrir okkur og ég fékk loksins langþráðan draum uppfylltan. Er eitthvað hvalasjúk og núna stefni ég á að fara á íslandi og þá hef ég séð hvali í tveimur höfum. Síðasta kvöldið fórum við svo á svona show, held það sé kallað Luah sem er svona ekta Hawaii"ískt". Fórum í rútu á strönd á vesturhluta eyjunnar og horfðum á mismunandi ætbálkakynningar, húllahúlladans og ég veit ekki hvað og hvað. Þvílíkt sem þetta fólk er hæfileikaríkt að dansa og dilla sér. Allt voðalega sérstakt. Innifalið í þessu var svo Hawaiiskur matur, svín á teini og alls konar mall sem bragðaðist bara ágætlega sem við skoluðum niður með frozen margaritas....
ég get ekki einu sinni talið hversu oft ég horfði í kringum mig og sagði við Betu "Þetta er lífið" eða "erum við bara á Hawaii".... Eiginlega bara too good to be true... í ALLA staði geðveik upplifun og við kærustuparið nutum ferðarinnar svo sannarlega í botn..
Fyrir og eftir spring break hefur lífið svo bara einkennst af lærdómi og síðan gleði um helgar. Kennararnir halda okkur svo sannarlega við efnið og svo hef ég líka verið að leggja extra hart að mér til þess að reyna að ná að læra smávegis fram í tímann þar sem hún ÓSK MÍN KRISTINSDÓTTIR er á leiðinni til mín eftir minna en viku núna. Þann 1. apríl lendir ástarhnoðrinn hjá mér. Og ég er endalaust mikið að elska það. Get ekki beðið eftir að knúsa hana og leika í TVÆR VIKUR.... húrrahíííííí.....
Er núna hjá Jonnu og Baldvin í west palm beach, florida. Ákvað að panta þetta í febrúar af því ég elska þau og það er alveg yndislegt að leika við þau. Búin að vera hér í tvo daga og er að njóta lífsins í botn. Ég og jonna slepptum okkur einmitt í forever21 bara fyrir nokkrum tímum. Jehú... Kem með góða sögu þaðan síðar. ....
Hef í raun ekkert meira að segja í bili...
blogga kannski á meðan ósk er...
later lovers..
kg
Hawaii here I come in 9 days....Katla Guðjónsdóttir
Eins og titillinn á blogginu gefur til kynna þá eru jú 9 dagar í að ég fari til HAWAII... sem er æðislegt, yndislegt, best í heimi og heldur í mér lífinu þessa dagana. Ég er að reyna að vera dugleg að gera heimavinnu fram í tímann svo ég þurfi ekki að gera neitt lærutengt þegar ég er að dilla mér í húllahúllapilsi með kokteil í hönd á Honolulu... vííí
Fínasta fínt mikið að gera í skólanum þessa dagana. Allir kennararnir að reyna að koma sínum verkefnum og prófum og sulli inn fyrir springbreak sem er bæði gott og vont. Gott af því þá er minna yfir springbreak en vont af því það er alltaf leiðó að þurfa að fara í próf.. haha...
Gengur samt bara voðalega vel í öllu. Er búin að fara í eina rullu af prófum í öllum tímunum og er bara sátt með gengið. Svo er fyrsta alvöru major ræðan mín á morgun í speech sem mig langar að dópa mig upp fyrir. Maður þarf alltaf að fara upp og tala í hverjum tíma en þessi er undirbúin og þá þýða engin mistök. Engin aukaorð, mikið eyecontact, bara stikkorð leyfð til að muna og ég veit ekki hvað og hvað. Best að hlaða á sig svitalyktaeyði fyrir þann tíma þar sem ég verð sveitti jón valmundarson í þessar mínútur sem ég þarf að halda ræðu...
!!
Ég held áfram að reyna að vera dugleg í ræktinni svona þegar ég nenni. Sérdeilis fín líkamsræktarstöð og starfsfólkið voða almennileg og vingjarnleg. Nokkur kjöt þarna líka sem gaman er að kíkja á þar sem framboðið er í lágmarki í skólanum mínum. Hahhaa... Ekki að ég sé nú mikið að velta því fyrir mér því ég hef það nú í huga að næla mér í eitthvað séríslenskt gourmet kjöt úr nóatúni.... haha..
Svo ætla ég að búa til nýja myndasíðu á næstunni svo þið getið séð mig vaxa og dafna... í tilefni síðustu annarinnar... veiii.. kem það news on that later...
En það helsta í fréttum er samt að Lauga vinkona og Guðni eru búin að eignast litla fallega prinsessu. Hún kom 3 dögum fyrir settan dag og þvílíkt sem mín var á hraðferð. Fæðingin gekk eins og í sögu og Lauga hetja tók þetta á hörkunni, án lyfja og hringdi svo í mig um 2 tímum eftir herlegheitin með litlu snúlluna sér við hlið. Ég er ennþá að reyna að trúa að þetta sé satt og er búin að skoða myndirnar af henni um það bil 8 sinnum á dag síðan þær komu fyrst inn. Hlakka mest í heiminum til að koma í heimsókn strax og ég kem heim í Maí. Best finnst mér að barnið man ekkert eftir neinu sem gerist þegar þau eru svona ung þannig ég kem á réttum tíma til að tryggja það að ég verði besta frænkan. Með gjafir frá AMÓ.
Innnnnnnilega til hamingju elsku besta lauga og guðni og auðvitað Emma sól með litlu systur. 


Svo er það harpa og hannes næst.... Harpa er komin með risastóra bumbu og lítur rosalega vel út. Bara eins og hnullungs bolta hafi verið plantað framan á hana. Hlakka rosalega til að fá þann gullmola í hópinn líka. 6 meðlimur HRASK... víí...
ást frá amó
kalli
guðdómlegt líf...Katla Guðjónsdóttir
Núna er sko lífið allt annað en það var þegar ég skrifaði fyrstu færsluna eftir jólafríið. Lífið svo sannarlega leikur við mig þessa dagana. Sérstaklega í dag. Ég byrjaði þó daginn á því að sofa til 9:58 þegar ég átti að mæta í tíma klukkan 10:00 en ég hoppaði bara í föt, burstaði tennurnar og náði í tíma 10:06. Húrra fyrir mér. Eftir tímann fór ég heim og beta koma að leika og við.....
PÖNTUÐUM FERÐINA TIL HAWAII ÞANN 28.FEBRÚAR TIL 5.MARS
vorum að pæla í að lenda í Atlanta þann 4.mars og fara á Britney Spears og Pussy Cat dolls tónleika þann 5.mars en hættum síðan við. Viljum njóta lífsins lengur á Hawaii í staðinn. Maður getur ekki keypt sér geisladiskinn með Hawaii eins og geisladisk með Brillu þannig það er úr sögunni. Þetta verður snilldin ein og ég er óendanlega spennt....
Síðan pantaði ÓSK KRISTINSDÓTTIR miðann sinn út í heimsókn til mín í dag líka. Hún kemur til mín þann 1.apríl, á miðvikudagskvöldi og verður hjá mér til 15.apríl. Þarna á milli er páskafrí hjá mér og þá helgi gerum við eitthvað CRAZY og svo hina dagana þá verður dúndurstemmning í CENTRAL city... en ég verð búin með mikla heimavinnu og svona þannig við getum leikið endalaust... Ég er ÓGILLLLLLEGA SPENNT.. ánægð að við séum búnar að negla þetta. Svo fékk hún líka öll fjögur flugin á fínu verði. Sem er bara plús því þá getur hún eytt meira í staðinn... víííííí
Síðan fór ég í dag að skoða líkamsræktarstöð hérna í grenndinni. Og heldur betur snilldin ein. Ótrúlega flott gym, öll tækin ný og flott, stöðin stór. Boðið uppá spinning, pilates, bodypump, boxing og svo er einn salur sem er með stóran bíóskjá og þar getur maður verið á tækjum að horfa á mynd í kolniðamyrkri. Meiri snilldin. Ég og beta fórum og skoðuðum þetta í dag og leist heldur betur vel á. Við fengum líka sérstakan díl af því við erum nemendur í SWU, 6 mánaða kort á heila 99 dollara. Minna verð fyrir 6 mánuði hér heldur en mánaðarkortið sem ég keypti mér í world class yfir jólin. Kjarakaup og nú skal tekið á því... eða svona... Reyna....
Annars er andrúmsloftið í íbúðinni búið að vera frekar skrýtið undanfarna daga. Ein af stelpunum sem búa með mér gerði nefnilega stórvægileg mistök á laugardaginn og kyssti annan strák. Hún á kærasta og hafði hugsað sér að giftast honum þrátt fyrir að hafa hitt hann fyrir innan við ári... en svona er kaninn... En burtséð frá bryllaupinu þá gerði hún allaveganna þetta af sér og gaurinn heima (sem er 12 tíma í burtu) vill ekki sjá hana né í henni heyra þannig eftir situr hún hérna í mikilli depru. Við hinar erum í fullri vinnu við að láta hana éta eitthvað svo hún skorpni ekki upp. Ég held ykkur inní þessu drama og segi ykkur hvernig þetta er. Framhjáhald er bara svo ljótt og ég vildi óska að það væri ekki til í þessum heimi. Hún kallaði þetta samt svo mikið uppá sig sjálf að ég á bágt með því að finna of mikið til með henni. Ég var búin að vara hana 100 sinnum við og reyna að segja henni að hegða sér og við allar stelpurnar og svo um leið og við fórum úr partýinu þá lét hún undan freistingunni ... bévísk... but that´s life....
...vonum að þetta fari á besta veg.
Ísland heldur áfram að vera crazy. Var í kapellu á þriðjudaginn og þá koma tveir kennarar upp að mér og spyrja mig hvernig mér líði og hvernig fjölskyldan hafi það. Þá voru þeir búnir að sjá í fréttunum hérna úti allt vesenið sem er í gangi og höfðu áhyggjur litlu dúllurnar.... Mér fannst það fyndið. Gaman að vita að þau fylgist líka smá með okkur af því við fylgjumst líka svo andskoti mikið með þeim... love it...
Sögustundin búin í dag...
farin að læra í hausinn á mér...
love you kiss me..
kg
síðasta önninKatla Guðjónsdóttir
Komin í sæluna... eða æluna... Þetta lýsir tilfinningum mínum þessa dagana.... þetta fer upp og niður, upp og niður.... o.s.frv.
Dramað tók svo sannarlega á móti okkur stelpunum fyrsta laugardaginn hérna úti. Tvær úr hópnum rétt sluppu við líkamsmeiðingar frá hvor annarri þegar við blönduðumst inní þetta og þetta endaði á því að allir grenjuðu og rifumst þar til fjögur um nóttina. Næsta morgun vöknuðum við svo og hlógum að þessu öllu saman... Ég bið þess að ég muni aldrei aftur upplifa neitt þessu líkt... plíííís... ég er ekki gerð fyrir svona hluti. En gott að þetta var búið næsta dag og allir orðnir vinir aftur. AMÓ AMÓ...
Fínt að vera komin aftur út samt. Er orðin voðalega spennt að klára þetta allt saman, útskrifast og komast burt héðan í hamagangi. Rosy litla ætlar einmitt að koma í heimsókn til mín frá 17.maí-31.maí. Hlakka rosalega mikið til að sýna henni allt og leika og svo að allir fái að hitta gullmolann sem hún er...
Jeij
Skólinn er bara same old, same old. Er að taka persónuleikasálfræði, anatomy and physiology, Animal behavior, Basic Christian Believe, svo er ég í tíma sem ég er að gera "lokaritgerð" svona stóra í og svo í helv... RÆÐUTÍMA, speech communication... kill me now. Þarf að standa upp og tala í hverjum einasta tíma og svo eru 4 stórar ræður... ekki gaman. Smá kvíði í mallanum fyrir hvern einasta tíma. Svo er ég með kennara sem hreyfir munninn óeðlilega mikið í þessum ræðutíma og hann minnir mig svo mikið á þjálfa að hann er strax farin að fara í taugarnar á mér... alltaf að reyna að vera fyndinn.. Nenni ekki þannig þegar ég er að skíta í mig úr stressi um hvað ég þurfi að gera næst... búhú.. en ég verð að vera góð svo ég fái góða einkunn..
JÓLIN JÓLIN JÓLIN... voru best í heimi. Elskaði að þurfa ekki að gera rassgat í bala og leika mér allan daginn. Ralli kæró og halli voru duglegar í ræktinni með mér og við nýttum dagana oft vel... og svo var alltaf nóg að gera á kvöldin... ég vil að jólin komi aftur á morgun.... NÚNA...
Það sem bíður mín
- Hawaii með Betu
- West Palm Beach til Jonnu og Baldvins
- San fran til Vimma
- ÓóóóóóóóóSSSSSK í heimsókn (og vonandi Lára litla líka)
- fleiri ferðalög.. húrra...
veit ekki meira í bili..
love you like a fat kid loves cake
katla
Bára lögst í bleyti...Katla Guðjónsdóttir
... og kalli kull kemur heim á föstudaginn...
3 próf og 1 ritgerð to go...
5 sinnum að sofa....
oft að borða því þannig er það bara....
JÓÓÓÓÓÓÓÓÓÓÓÓÓÓLLLLLLLLLLLL......
bæ
thanksgiving breakKatla Guðjónsdóttir
12 dagar í heimkomu...
Helgina 21-23 nóv fórum við niður til West Palm Beach að keppa í kristnaskóla regionals og unnum þá tournament sem þýðir að núna á mánudaginn erum við á leið til Kissimee florida í nationals. Þetta var voðalega gaman allt saman. Úrslitaleikurinn var á móti Palm Beach Atlantic. Við gjörsamlega yfirspiluðum þær en náðum ekki að setja tuðruna inn. Svo fá þær fáránlegt víti og skora úr því. Þá vöknuðum við og byrjuðum að spila 10 sinnum betur. Fyrsta markið skoraði ég úr aukaspyrnu og seinna markið skoraði Rosy. Leikurinn fór 2-1 og við regional champions.
Frá því á miðvikudaginn síðasta hefur verið thanksgiving break. Þar sem við unnum þá þurftum við að æfa á miðvikudagsmorgun og svo í gærkvöldi og í dag. Þannig við fengum smá break og fólk fór heim og svona. Ég fór til Virginu með einni í liðinu og hitti þar krakka sem voru í skólanum í fyrra. Ótrúlega gott að komast aðeins burt úr skólaumhverfinu. Fórum einmitt til Washington DC einn daginn og ég fékk að sjá Hvíta húsið, Lincoln Memorial og allar flottu byggingarnar þarna sem mér fannst algjör snilld. Hringdi einmitt í mömmu þegar ég var fyrir utan Hvíta húsið og lét hana spyrja mig hvar ég væri á sjálfan Thanksgiving day. Ég var eins og versti túristi og tók myndir af MÉR og öllu. Hahaha... Svo verslaði ég, fór á vínbar, í bíó á jólamynd, og fleira gourmet. Ekkert smá gott break. 8 tíma akstur báðar leiðir með Megan í liðinu mínu vel þess virði.
Núna er ég komin heim og á morgun fer ég til Florida í national og verð þar þangað til á sunnudaginn 7.des... þá eru 3 prófadagar og svo fer ég heim á fimmtudeginum. Við missum af fyrstu vikunni af prófum útaf nationals en höfum verið að taka próf fyrr og tökum nokkur þessa þrjá daga....
Hef ekkert meira að segja. Smá update af lífinu. Get ekki beðið eftir að komast heim... eins og þið kannski hafið tekið eftir...
ást og friður
kalli
úllallaKatla Guðjónsdóttir
29 dagar





Lífið gengur sinn vanagang hérna í suðrinu. Erum bara að æfa núna þar til við leggjum í hann til florida, West Palm Beach, þar sem jonna og baldvin heimsins mestu dúllur búa. Það er sennilega það eina sem gleður mig við að fara í þessa ferð. Hlakka til að sjá þau og knúsa þau og vona bara að við festumst og ég þurfi að vera eftir hjá turtildúfunum. Keppum þar einn eða tvo leiki, ekki komið í ljós og ef við vinnum þá förum við heim í viku og komum svo aftur til florida, í Kissimee, þar sem guðni hennar laugu býr og keppum þar í kristnaskóla nationals. Vonum bara að þetta allt saman gangi vel. Við erum samt allar komnar með ógeð af fótbolta en við hljótum að koma okkur í gírinn fyrir þetta...
Skólinn líka á sínum stað bara og allt nóg að gera. Það er aldrei kvöld án heimavinnu hjá þessum dýrlingum...
Við Beta ætlum svo að fara í mall of georgia á laugardaginn þar sem H&M hefur nú opnað okkur til mikillar gleði, ánægju og yndisauka. Þar er einnig forever21, charlotte og fleiri góðar dúllur. Byrja á smá jólagjafakaupi þó það líti út fyrir að það verði lítið um það þessi jólin. Verður mest bara fjölskyldugjafir sem ég er heldur betur sátt með. Þetta hefur verið svo mikil geðveiki undanfarin ár.
Þjálfi semsagt búin að vera að nuða í mér síðan ég kom út um að vera 4 árið mitt hérna úti, þ.e.a.s bara næstu önn af því maður má spila fótbolta í 4 ár, og þá myndi ég bara taka einn tíma eða eitthvað og útskrifast næstu jól. Ég er að þykjast hugsa um það svo hann fari ekki í fýlu og hendi mér í ruslið þar til seasonið er búið þá segi ég honum að ég ætli að koma mér heim. Ég held að þetta sé komið gott héðan....
Vildi svo bara óska honum Frosta litla bróður mínum innilega til hammó með ammó í gær og hrafnhildi litlu í dag. Hringdi í þau bæði til að óska þeim og þau áttu góðan dag þannig ég er sátt.
en nú ætla ég að halda áfram að vinna í tímavélinni sem ég er að reyna að búa til hérna úti svo tíminn líði hraðar....
kyssogklem,
kalli
Katla Guðjónsdóttir
- 43 dagar í heimkomu. Íslenskt Já takk.
- 2 leikir eftir á regular season
- Unnum síðasta heimaleikinn minn á móti Milligan 2-0
- Var pínu sorglegt að spila síðasta leikinn minn hérna í SWU, en samt gleði
- Skólinn er alltaf jafn crazy en ég redda þessu alltaf með löngu vaki frameftir... "þetta reddast"
- Farið að kólna örlítið í suðrinu, ekkert alvarlegt en kaninn er að missa sig
- Hlakka ENDALAUST til jólanna
- Jólagjafaleiðangur fljótlega með betu hnetu til ATLANTA, þar sem H&M var að opna
- Hlakka til að knúsa tvær bumbur um jólin
- Tók alþrif í íbúðinni í dag og finnst æðislegt að aðeins 1 af 3 herbergisfélögum hjálpuðu til. Hinar horfðu bara á og pössuðu sig að labba ekki yfir blautt gólfið... dúllur...
Ekkert að segja úr sólarlausu suðrinu....
kyss&klem
kalli kull
...Katla Guðjónsdóttir
Ekki mikið í fréttum þessa dagana.
Sama gamla bara. Skóli, bolti, skóli, bolti, skóli, bolti... o.s.frv.
Erum búnar að keppa 11 leiki, vinna 8 og tapa 3. Sem er bara mjeeeg gott. Vorum að keppa við Reinhardt College núna á laugardaginn. Hötum þær af því við kepptum við þær í fyrra fyrst í deildinni og töpuðum naumlega 1-0 og svo í úrslitum um sæti í deildinni í lokin kepptum við aftur við þær og töpuðum 4-3 í framlengingu. Þannig það var afar notalega að fara á þeirra heimavöll og vinna. Þær byrjuðu á því að skora á fyrstu 15 mínútunum og svo komum við til baka í seinni hálfleik með tvö mörk. Sigurmarkið var skot frá mér sem var varið og svo fylgdi ein í liðinu eftir og skoraði. Jeij. Það fyndna var svo að strákarnir áttu svo að keppa strax eftir okkar leik. Við drifum okkur í sturtu til að fara út að horfa á þá spila en þegar við komum út á völl þá var enginn leikur. Reinhardt kalla þjálfarinn klikkaði á að redda dómurum og dómararnir úr okkar leik voru farnir heim. Þannig það var enginn leikur og nú þurfa þeir að koma og keppa við strákana okkar á heimavelli. Það var fínt samt, því við komum mun fyrr heim heldur en von var á og fórum aðeins út. Nauðsynlegt að fagna sigrinum góða...
Keppum tvo leiki í þessari viku og svo eigum við þrjá leiki eftir það af venjulegu tímabili.
Helgina 21-23 nóvember förum við svo til Palm Beach í regional tournament í kristnaskólakeppninni. Unnum okkur réttinn að keppa þar núna um helgina með að vinna 8. leikinn.... verður góð 13 tíma keyrsla í rútu... fjútfjú.
Ég tel bara niður dagana þangað til ég kem heim. Sé ekki fram á mikinn tíma til að kaupa jólagjafir þar sem fótboltinn verður búin voðalega seint í ár. Svo eru náttúrulega sumir sem eru að segja manni að það verðir enginn jól á fagra íslandi í ár útaf "ástandinu". Kannski þarf maður ekkert að kaupa neinar jólagjafir..hehe
Hefði í alvörunni getað sleppt því að taka helminginn af fötunum mínum hingað út þar sem ég er ALLTAF í joggaranum. Ég hef það ekki í mér að vakna fyrr en 10 mínútum fyrir tíma. Vona að þetta lagist í framtíðinni...
Vá það er ekkert að segja...
bless í bili..
kalli
fallbreak..Katla Guðjónsdóttir
Ég held ég hafi aldrei elskað neitt frí í lífi mínu betur heldur en þetta sem ég er í akkurat núna. Það er búið að vera of mikið að gera í lífinu síðan ég kom og núna er ég búin að liggja í LETI LETI LETI síðan á laugardaginn. Við erum búnar að horfa á held ég 2-3 myndir á dag og éta þess á milli. Þetta er búið að vera hreint út sagt yndislegt. Er varla búin að fara út úr húsi. Það eina markverða sem ég er búin að afreka síðan fríið byrjaði er að borga skattinn af bílnum mínum og smá heimavinna. Og jú, svo fórum við út á lífið á laugardaginn...haha.. love it..![]()
Á morgun byrja fer ég svo á tvær fótboltaæfingar, tvær á fimmtudaginn og svo eina á föstudaginn og eftir hana leggjum við af stað í 6 klst rútuferð með strákaliðinu (boring, ógó þröngt í rútunni) og gistum á hóteli og keppum svo við skóla sem heitir Brewton Parker á laugardaginn. Það fer allur dagurinn í það þar sem við þurfum að horfa á strákana líka keppa á eftir okkur og keyra svo 6 tíma heim. Pirrandi ferðaleg en samt gott að gera þetta þegar það er ekki skóli og heimavinna. Illu er bestu af lokið.. !!!
Sakna mömmu og pabba. Var búin að venjast þeim hérna í SWU...![]()
Er að horfa á I am legend núna og gera ritgerð í philosophy...
Erum búnar að vinna 6 leiki og tapa tveimur (báðum á móti sull liðum sem við hefðum svooo átt að vinna). 6 leikir eftir af venjulegu leikjaskrá. Allt frekar erfiðir en ég hlakka til að sjá hvernig okkur gengur.
Ekkert merkilegt að gerast í suðrinu þessa stundina. Mjög innihaldslítið blogg þennan daginn. Reyni að gera eitthvað af mér svo ég hafi meira að segja næst.
Vildi enda þetta á því að óska elvu ýr og magga innilega til hamingju með nýja beibí. Ég er stolt frænka. Húrra hí.
Kalli bingó